LÆRT 2025 verður haldið dagana 13.-15. nóvember 2025 í Menntaskóla Borgarfjarðar. Gisting er í boði á Hótel Vesturlandi beint á móti skólanum.
Gert er ráð fyrir að ráðstefnugestir mæti á fimmtudegi og séu sjálfum sér nóg um mat á fimmtudeginum, en boðið verður upp á drykk á hótelinu það kvöldið.
Ráðstefnan hefst föstudagsmorguninn kl. 9 og stendur til kl. 16. Boðið verður upp á hádegismat á ráðstefnusvæðinu. Um kvöldið er svo sameiginlegur kvöldmatur á hótelinu. Hvort tveggja er innifalið í ráðstefnugjaldinu. Ráðstefnan heldur svo áfram laugardagsmorguninn og stendur til hádegis svo ráðstefnugestir hafi tök á að komast aftur heim samdægurs.
Skráningu er lokið. Sjá yfirlit yfir: vinnustofur, málstofur, og vinnustofuskráningar.
Fimmtudagur 13. nóvember
16:00-19:00
Skráning og uppsetning bása í Menntaskóla Borgarfjarðar
20:00-22:00
Móttaka á Hótel Vesturlandi og spjall. LÆRT 2025 býður upp á fordrykk og gestir hafa frátekið rými til spjalls.
Föstudagur 14. nóvember
08:30–09:00
Skráning og morgunkaffi
09:00–09:20 Setning ráðstefnu – Stutt ávarp og yfirlit yfir dagskrá
09:20–10:20 Vinnustofur – Lota 1
- Leynilist með tungumáli tölvanna (Edda Björnsdóttir)
- Mannslíkamaverkefni til að virkja nemendur (Þorbjörg Ólafsdóttir)
- Sögur sem kveikja neista og gera ósýnilegt sýnilegt (Margrét Hugadóttir)
- Töfrar stærðfræðinnar (Guðbjörg Helga Guðmundsdóttir)
- Vísindasmiðja í Ísaksskóla (Sigríður Hrund)
10:20–10:40 Kaffihlé og tengslamyndun
10:40–12:00 Málstofur
12:00–13:00
Hádegishlé
13:00–14:20 Menntabúðir
14:20–15:20 Vinnustofur – Lota 2
- Hvað varð um fætur hvalsins? (Edda Elísabet Magnúsdóttir)
- Lykilhæfni með LEGO (Hildur Sigfúsdóttir)
- Stærðfræðispil (Þorsteinn G. Berghreinsson)
- Uppgötvanir í Urriðaholti (Sigrún Edda Halldórsdóttir)
- Veðurmælingar (Brynja Stefánsdóttir)
15:20–16:00 Sameiginlegt uppbrot: Tengslamyndun í gegnum skapandi áskorun
16:00-19:00
Engin formleg dagskrá. Munið eftir spa-inu á hótelinu sem er innifalið í gistingunni. Þátttakendur á LÆRT 2025 fá ennfremur frítt í sund gegn framvísun LÆRT nafnspjalds.
19:00-22:00
Sameiginlegur kvöldmatur á Hótel Vesturlandi
Laugardagur 15. nóvember
09:00–09:30
Sameiginlegt upphaf dags.
09:30–10:30 Vinnustofur – Lota 3
- Garðfuglaverkefnið og Fjörulíf (Ólafur Einarsson)
- Hagnýt ráð til að styðja við skilning á námsefni þvert á tungumál (Sigrún Þóra Skúladóttir)
- Hugsandi skólastofa (Eyþór Eiríksson)
- Leikur að rafmagni (Martin Jónas B. Swift)
10:30–10:50 Kaffipása
10:50–11:40 Sameiginleg málstofa: Framtíðarsýn
11:40–12:00 Lokaorð og næstu skref
12:00-14:00
Frágangur og brottför.