LÆRT er tvíær menntaveisla kennara sem koma að kennslu stærðfræði, náttúruvísinda, tæknigreina, eða annarra greina sem eiga snertiflöt við þær eins og list- og verkgreinar. Þessar greinar eru stundum nefnd STEM-greinar en það er dregið af enska skammnefninu fyrir Science, Technology, Engineering og Math. Ekkert íslenskt orð hefur náð fótfestu fyrir þetta hugtak en LÆRT er dregið af lærdómssamfélagi raunvísinda- og tæknigreinakennara. Það samsvarar gróflega til STEM kennara en ekki ætlað að vera tekið hátíðlega. Öll þau sem hafa áhuga á að þróa kennslu sína í þessu samhengi eru velkomin á LÆRT!
Í stýrihópi LÆRT 2025 eru:
- Alexía Rós Gylfadóttir, Mixtúru
- Ásdís Ingólfsdóttir, Science on Stage Ísland
- Birgir Martin Barðason, Félagi raungreinakennara
- Elísabet Blöndal, Fleti
- Helga Snæbjörnsdóttir, Science on Stage Ísland
- Hildur Sigfúsdóttir, Heiðarskóla
- Huld Hafliðadóttir, STEM Ísland
- Martin Jónas Björn Swift, NýMennt
- Signý Óskarsdóttir, Menntaskóla Borgarfjarðar





