LÆRT kynnt
Menntaveislan LÆRT verður haldin í Borgarnesi dagana 13.-15. nóvember 2025. LÆRT er ráðstefna á menntaveislusniði í anda Science on Stage Festival með áherslu á tengslamyndun, miðlun hugmynda og reynslu, og starfsþróun. Starfshópur hefur verið skipaður í kringum hátíðina en að henni munu standa auk fulltrúa kennara, Flötur, Mixtúra, NýMennt, og STEM Ísland.