Lærdómssamfélög
Kennarar gegna lykilhlutverki í að móta viðhorf, sjálfstraust og áhuga nemenda, sérstaklega í STEM greinum, þar sem kynjaðar staðalímyndir eru rótgrónar (Mujtaba & Reiss, 2013).
Lærdómssamfélögin kynnt hér (National Inspiration Hubs) eru lifandi stafrænir vettvangar þar sem STEAM kennarar í grunn- og framhaldsskólum, háskólakennarar og fræðsluaðilar frá ýmsum stofnunum og samtökum koma saman til að miðla þekkingu, vinna saman og byggja upp færni. Lærdómssamfélögin stuðla að miðlun sérfræðiþekkingar, bestu starfsvenjum, reynslu og til að kynna nýjar nálganir í STEAM kennslu.
Nokkur lærdómssamfélög koma að kennslu raun- og tæknigreina og tengja kennara innan ákveðinna mengja greina og skólastiga.

Flötur, samtök stærðfræðikennara, halda úti vefritinu Flatarmálum og standa fyrir ýmsum viðburðum.
Stærðfræðikennarinn er virkur Facebook hópur stærðfræðikennara.

Náttúrutorgið er lærdómssamfélag náttúruvísindakennara.
Náttúrufræðikennarar er virkur Facebook hópur náttúruvísindakennara.
Ráðstefnur
- Science on Stage Festival menntahátíðin er tvíæringur, haldin á sléttum árum. Stýrihópur Science on Stage Ísland velur fulltrúa til að taka þátt á Science on Stage Festival í desember á oddatöluárum að undangengnu umsóknarferli um haustið. Næsta menntahátíð verður 28.-31. maí 2026 í Klaipėda, Litháen.
- Big Bang – Naturfag for fremtiden er stærsta ráðstefna náttúruvísindakennara í Danmörku og haldin árlega í mars. Næsta ráðstefna er 18.-19. mars 2026 í
- ASTE International Conference er árleg ráðstefna náttúruvísindakennara sem bandarísku samtökin Association for Science Teacher Education standa fyrir.
Erlendar bjargir

Astra er sinnir stuðningi við STEM menntun í Danmörku. Þau bjóða upp á starfsþróun í formi námskeiða, fræðslu um kennslufræðilega nálgun, og verkefna. Þau tengja líka saman kennara í fjögur lærdómssamfélög og halda utan um verkefnabanka fyrir STEM menntun.
Astra sér einnig um Ungt vísindafólk keppnina, verkefnabankann Testoteket, vísindavökuverkefnið Naturvidenskapsfestival, nemendarannnsóknaverkefnið Masseeksperiment, og náttúruvísindabúðirnar Science Talenter.

Náttúrugreinakennasamband Danmerkur styður kennara sína m.a. með útgáfu tímarita um fagleg málefni. Sjá t.a.m. Natur//Teknologi og STEM bladet.